Sýning A Kassen opnuð í Skaftfelli

skaftfellOpnuð hefur verið sýning frá danska listahópnum A Kassen í Skaftfelli á Seyðisfirði. Hópurinn dvelur í gestavinnustofunni í júní og júlí.

Skaftfells er að ætlað að veita listamönnum tíma og rými til að upplifa, rýna í og kanna sköpunarferlið í frjóu og hvetjandi umhverfi. Samhliða mun A Kassen sýna afrakstur dvalarinnar í aðalsýningarsal Skaftfells frá 17. júní – 26. ágúst.

Snemma á undirbúningsstigum fór A Kassen hópurinn að afla sér vitneskju um íslenska náttúru og menningu. Sér til mikillar furðu uppgötvuðu þeir að á suðurhluta Íslands er að finna stærstu banana plantekru í Evrópu.

Ræktun hófst árið 1951 í Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum í Ölfusi, rétt fyrir ofan Hveragerði. Bananarnir hafa verið ræktaðar þar óslitið síðan og er nú stýrt af Landbúnaðarháskóla Íslands. Árleg uppskera er um 100-120 klasar sem eru ræktaðir á 600-700 fermetra svæði. Gróðurhúsið er staðsett á jarðhitasvæði og notast er við jarðvarma og dagsbirtu við ræktunina.

Listamönnunum fannst þetta framtak áhugavert hliðstætt við áliðnaðinn sem fyrirfinnst á Austurlandi. Þar er framleitt allt að 360.000 tonn af áli á ársgrundvelli með vatnsaflsorku, sem fæst með virkjum tveggja jökulfljóta.

Bæði bananarnir og álið eiga það sameiginlegt að vera utanaðkomandi í íslenskri náttúru en jafnframt eru hin séríslensku náttúruöfl beisluð til að þjóna framleiðslunni.

A Kassen ætla að styðjast við þessar staðreyndir sem útgangspunkt við vinnuferli sitt og á meðan dvöl þeirra stendur munu listamennirnir halda áfram hugmyndavinnu og þróa verk sín í sýningarsalnum. Þar af leiðandi mun sýningin taka breytingum á tímabilinu og haldin verður móttaka 27. júlí þegar vinnuferlinu lýkur.

A Kassen er danskur listahópur sem hefur verið starfræktur síðan 2005. Meðlimir eru Christian Bretton-Meyer, Morten Steen Hebsgaard, Søren Petersen og Tommy Petersen. Þeir stunduðu allir nám á sama tíma í Konunglega danska listaháskólanum í Kaupmannahöfn og útskrifuðust árið 2007.

A Kassen hafa verið mjög virkir í sýningarhaldi og hafa einu sinni áður sýnt á Íslandi, í maí 2012 þegar hópurinn var með einkasýningu í Kling & Bang gallerí, sem var hluti af Listahátíð í Reykjavík. Meðal síðustu sýninga má nefna “Secret Garden” í GL Holtegaard í Danmörku sumarið 2012 og sýningu í Gallery Nicolai Wallner í Kaupmannahöfn í apríl 2013. Framundan hjá hópnum er sýning í Centre Pompidou í París, febrúar 2014. Sjá vefsíðu hópsins fyrir nánari upplýsingar: www.akassen.com

Sýningin stendur til 26. ágúst. Opið er daglega frá kl. 12 – 22 og aðgangur ókeypis.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar