Rostungur flatmagaði í sólinni í Reyðarfirði
Um þriggja metra rostungur vakti mikla athygli Austfirðinga í gær þar sem hann flatmagaði í sólinni í Reyðarfirði. Sjónarvottar segja að rostungurinn hafi legið þar pollrólegur, alveg flatur og haft það gott. Stöku sinnum hafi hann reist sig upp. Rostungurinn hafði áður viðkomu í Færeyjum og þarlendis hafa menn fylgst fullir áhuga með ferðum dýrsins.Mynd: Kristján H. Svavarsson