Setuliðsskemmtun á Reyðarfirði: Myndir
Hinir árlegu hernámsdagar voru haldnir á Reyðarfirði síðustu helgina í júní. Að venju var margt til gamans gert, farið í hernámsgöngu og hertrukkar, dátar, faukur og fínar frúr settu svip sinn á bæinn.Hápunkturinn var setuliðsskemmtun í félagsheimilinu Félagslundi. Þar sameinuðu leikfélag staðarins og Fjarðadætur krafta sína í stuttu leikverki.
Höfundar verksins voru þeir Gunnar Ragnar Jónsson og Þórður Vilberg Guðmundsson en Hjördís Helga Seljan leikstýrði verkinu.
Gestir virtist skemmta sér vel yfir verkinu sem segir frá hefðarfrú sem hefur áhyggjur af saurlifnaði í smábæ á landsbyggðinni á stríðsárunum. Hún bíður eftir nýjum presti sem hún vonast til að bæti siðsemi bæjarbúa en hann reynist fullt eins hrifinni af syndinni og aðrir.