Rostungur flatmagaði við Skálanes
Ungur rostungur sást í fjörunni neðan við Skálanes í Seyðisfirði á sunnudagsmorgun. Staðarhaldari segir að rostungurinn sé ekki sá sami og sást á Austfjörðum í júní.„Hann var afskaplega gæfur en það flæddi undir hann og hann synti frá eftir um klukkustund,“ segir Ólafur Örn Pétursson, staðarhaldari á Skálanesi.
Fyrir um mánuði bárust fréttir af rostungi í Reyðarfirði. Sá var vel þekktur í Færeyjum og hafði verið merktur þar. Hann færði sig síðan í suðurátt og sást til hans í Berufirði um viku eftir heimsóknina til Reyðarfjarðar.
Höfðu þátttakendur í sjósundhluta þríþrautarkeppninnar Öxi nokkrar áhyggjur á að rostungurinn slægist í þeirra hóp en var þá bent á að hann hefði líklega áhuga á öðrum og smærri lífverum í firðinum.
Ólafur Örn segir rostunginn sem sást við Skálanes ekki þann sama og var á ferðinni í júní.