Prufur fyrir Ísland Got Talent á Austurlandi
Stöð 2, með Auðun Blöndal í broddi fylkingar, leitar að fólki á öllum aldri til að taka þátt í Ísland Got Talent. Stjórnendur þáttarins verða á ferð um Austurland í næstu viku til að leita að hugsanlegum keppendum.Í tilkynningum frá framleiðendum segir að leitað sé að fjölbreyttum atriðum til þáttöku í keppninni.
„Söngur, dans, uppistand, hljóðfæraleikur, leiklist, íþróttir, áhættuatriði, töfrabrögð, sirkusatriði, gæludýragrín! Allt sem hefur skemmtanagildi!“
Leitað er að einstaklingum, pörum, litlum hópum og stórum og fólki á öllum aldri til þátttöku.
Verðlaun fyrir siguratriði þáttaraðarinnar verða tíu milljónir króna. Dómarar verða Bubbi Morthens, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Jón Jónsson og Þórunn Antonía Magnúsdóttir.
Áheyrnarprufur verða á eftirtöldum stöðum:
Höfn í Hornarfirði 1. október í Sindrabæ kl. 16.
Neskaupstað 2. október í Egilsbúð kl. 16.
Egilsstöðum 3. október í Sláturhúsinu kl. 16.
Skráning og nánari upplýsingar á stod2.is/talent