125 ára afmæli Alcoa fagnað í Fjarðaáli
Hundrað tuttugu og fimm ár eru í dag liðin frá því að fyrsta álver Alcoa tók til starfa í Pittsburgh í Bandaríkjunum. Af því tilefni fagnaði fyrirtækið tímamótunum á starfsstöðvum sínum um allan heim. Í afmælisveislunni í Fjarðaáli í dag var greint frá tveimur stórum verkefnum sem Samfélagsjóður Alcoa hefur styrkt með umtalsverðum hætti.Annars vegar er um að ræða verkefni til eflingar almenningssamgangna á Austurlandi og hins vegar framkvæmdir við Jökulsá á Dal til að auka laxagöngu í ánni.
Samfélagssjóður Alcoa hefur styrkt Veiðifélag Jökulsár á Dal um 84 þúsund dollara, rúmar 10 milljónir króna, til uppbyggingar árinnar sem laxveiðiár. Unnið er að fjölgun laxa í ánni og kaupendum laxveiðileyfa, en markmiðið er ekki síður að stuðla að vernd Norður-Atlantshafslaxastofnsins, fjölgun ferðamanna og nýrra starfa á svæðinu.
Byggður hefur verið laxastigi gegnum steinboga í ánni og er fyrirhugað að leggja göngustíga og göngubrýr á svæðinu og koma fyrir fiskiteljara. Laxar ganga nú upp Jökuldalinn í töluverðu magni og veiddust 380 laxar í sumar, þar af um 50% ofan stigans. Sleppiskylda er enn í ánni, en stefnt er að því að gera Jöklu sjálfbæra sem laxveiðiá á næstu 10-15 árum.
Austurbrú hefur umsjón með framkvæmd samgönguverkefnisins á Austurlandi. Unnið er að því að bæta miðasölukerfi, setja upp strætóskýli og efla upplýsingagjöf og er markmiðið að fjölga strætófarþegum umtalsvert og draga um leið úr notkun einkabíla í landsfjórðungnum. Öll sveitarfélög á Austurlandi standa sameiginlega að verkefninu, sem Samfélagssjóður Alcoa hefur lagt lið með 66 þúsund dollara framlagi, um 8 milljónum króna.
Í afmælisveislunni hjá Fjarðaáli var ennfremur greint frá tveimur sjálfboðaliðaverkefnum á vegum starfsmanna fyrirtækisins, sem unnin voru í lok september. Á Neskaupstað var hjólastólaaðgengi bætt við þjónustuíbúðir fatlaðara við Bakkabakka og á Reyðarfirði var unnið að viðhaldsverkefnum í húsnæði félagsmiðstöðvar grunnskólans.
Í Fjarðaáli var starfsmönnum boðið upp á veislumat og afmælisköku í tilefni dagsins og afmælissöngurinn að sjálfsögðu sunginn. Þá skemmti uppistandarinn Ari Eldjárn starfsmönnum.