Aðalleikkona heilluð af norðurljósunum

Norðurljósin yfir Fljótsdalshéraði virðast hafa heillað leikara og tökulið þáttaraðarinnar Retreat sem tekin hefur verið upp á svæðinu.

Breska leikkonan Emma Corrin, sem fer með eitt aðalhlutverk þáttanna, birti meðfylgjandi færslu á Instagram í síðustu viku. Þar má norðurljósin sveiflast yfir bílum tökuliðsins sem í á aðra viku hefur verið lagt framan við Gistihúsið á Egilsstöðum.

Corrin er ein af þekktustu stjörnum þáttanna. Hún lék Díönu prinsessu í fjórðu þáttaröð The Crown. Fyrir það fékk hún Golden Globe-verðlaunin sem besta leikkona í aðalhlutverki í sjónvarpsþáttaröð og tilnefningu til Emmy-verðlaunanna.

Corrin leikur aðalhlutverkið í Retreat þar sem áhugaspæjarinn Darby Hart rannsakar morð á afviknum heilsugististað. Gestirnir eru ekki nema ellefu talsins og einn þeirra er þegar úr leik. Tíu grunaðir eru því eftir. Meðal annarra stjarna í þáttunum eru Clive Owen og Brit Marling.

Tökum á þáttaröðinni er nú að ljúka. Síðustu daga hefur meðal annars verið tekið upp í Vök baths auk þess sem sjá hefur mátt Hafrafellið baðað ljósi síðustu kvöld. Tekið hefur verið upp víðar á Austurlandi, vegfarendur yfir Fjarðarheiði hafa meðal annars rekist á snjóhús þar.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar