Álverið opnað almenningi á laugardag

Boðið verður upp á skoðunarferðir um álver Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði á laugardag í tilefni þess að fimmtán ár eru liðin frá gangsetningu álversins. Fjölbreytt skemmtidagskrá verður á álverssvæðinu.

„Fyrsta kerið var gangsett í apríl 2007 og síðan var álverið keyrt smátt og smátt upp í fullan rekstur. Við höfum gert þetta á fimm ára fresti til að halda upp á tímamótin,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Fjarðaáls.

„Með því að leggjast öll á eitt þá náum við að opna álverið fyrir almenningi. Annars er það vinnustaður sem er mjög lokaður af öryggisástæðum.

Við höfum séð að þetta er kjörið tækifæri fyrir starfsfólkið að fá fjölskyldur sínar í heimsókn á vinnustaðinn. Börnin eiga alla jafna ekki kost á því en fyrir þau er mikil upplifun að sjá þessi stóru hús og vélar. Starfsfólkið er því spennt að fá bæði fjölskyldurnar og annað fólk í heimsókn.“

Dagskráin á álverssvæðinu hefst hefst á hádegi og stendur fram til klukkan þrjú. Boðið verður upp á skoðunarferðir um kerskálann, steypuskálann og skautsmiðjuna. Starfsfólk verður til leiðsagnar en vinna verður í gangi annars staðar en í skautsmiðjunni.

Við aðalverkstæðið, Miðgarð, verður svið með dagskrá fyrir alla aldurshópa. Fram koma meðal annars leikhóurinn Lotta, Aron Can og Jón Hilmar ásamt hljómsveit og söngkonunum Sigríði Beinteinsdóttur og Elísabetu Ormslev.

Lostæti, sem rekur mötuneyti álversins, býður upp á götubita frá ýmsum heimshornum og bakarar frá Sesam baka ferskt sætabrauð. Leiktæki fyrir yngstu kynslóðina verða í gangi. „Það verður karnivalstemming á álverslóðinni og því gleður okkur að veðurútlitið er frábært,“ bætir Dagmar við.

Fjarðaál er stærsti einstaki vinnustaður Austurlands með um 550 starfsmenn. Til viðbótar starfa um 300 manns hjá undirverktökum á lóðinni. Á laugardag verður opin sýning frá Samáli, samtökum álframleiðenda á Íslandi, sem kallast „Fólkið í þorpinu.“ Á henni eru viðtöl og myndir af starfsfólki álveranna, þar með talið Fjarðaáls. „Heitið á sýningunni vísar til þess að álverin eru stórir vinnustaðir og á vissan hátt þorp,“ segir Dagmar að lokum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.