Andlát: Guðjón Sveinsson rithöfundur
Guðjón Sveinsson, rithöfundur úr Breiðdal, lést á Landsspítala Fossvogi þann 21. ágúst síðastliðinn.Guðjón var fæddur að Þverhamri í Breiðdal 25. maí 1937. Hann lauk landsprófi frá Alþýðuskólanum á Eiðum 1955 og Hinu meira fiskimannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1961.
Guðjón fékkst við ýmis störf í gegnum tíðina, starfaði sem sjómaður, stýrimaður, kennari, afgreiðslumaður, skrifstofumaður, stundaði búskap og var virkur í trúnaðar- og félagsstörfum, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Rithöfundasambandsins. Meðal annars sat Guðjón í hreppsnefnd Breiðdalshrepps frá 1970-1990 og var oddviti um átta ára skeið.
Guðjón skrifaði bækur fyrir börn og unglinga, orti ljóð, skrifað ritgerðir og lét að sér kveða í þjóðmálaumræðunni með skrifum í blöð og tímarit. Ljóð hans og smásögur hafa einnig birst á þeim vettvangi.
Fyrsta barna- og unglingabók Guðjóns, Njósnir að næturþeli, kom út 1967. Hann hlaut fyrstu verðlaun í smásagnakeppni Félags íslenskra móðurmálskennara fyrir söguna Morgundögg árið 1981. Af öðrum verkum hans má nefna barnabækur um Glaumbæinga sem komu út á níunda áratugnum, Leitina að Mórukollu frá árinu 1991 og Söguna af Daníel, skáldsögu sem kom út í fjórum bindum á tíunda áratugnum.
Síðasta ljóðabók Guðjóns Þegar skó af skönkum dreg – við skapadóm kom út hjá Félagi ljóðaunnenda á Austurlandi síðasta haust. Var hún bæði safn af úrvali ljóða Guðjóns sem og áður óbirtum.