„Átti ekki von á svona mikilli vinnu strax“
Tæplega 150 manns skráðu sig á heilsueflingarnámskeið fyrir eldri borgara sem fór af stað á vegum Fjarðabyggðar og Heilsueflingar Janusar í byrjun mánaðarins. Þjálfari hjá fyrirtækinu segir sannað að heilsueflingin skili árangri.„Ég veit til þess að í Reykjanesbæ, þar sem við höfum starfað sem lengst hér á landi og komin mesta reynslan á hlutina, þá eru læknar þar að skrifa upp á færri lyf en annars, það eru færri læknisheimsóknir eldri borgara og það er að hægjast á því hversu margir þurfa að fara inn á öldrunarheimili,“ segir Marín Laufey Davíðsdóttir, þjálfari í námskeiðinu eystra í Austurglugga vikunnar.
Þrátt fyrir að verkefnið hafi skilað árangri og gott orð farið af því þá fór aðsóknin langt fram úr væntingum.
„Ég skal fúslega viðurkenna að ég átti ekki von á svona mikilli vinnu til að byrja með. Aðsóknin hefur verið langt umfram áætlanir og við vorum lengi að við mælingar svona í byrjun. Svo hefur nokkuð af fólki haft samband eftir að mælingar hófust í síðustu viku og viljað vera með en við ætlum að reyna að taka annan hóp inn að sex mánuðum liðnum.“
Marín Laufey ásamt Janus Guðlaugssyni, stofnanda verkefnisins. Mynd: Janus heilsueflingLengri útgáfa viðtalsins birtist í Austurglugganum sem kom út í vikunni. Hægt er að panta áskrift hér.