Austfirskar perlur: Hafnarbjarg
Mynd af Hafnarbjargi, sem skilur að Borgarfjörð og Brúnavík, er þriðja myndbandið í samstarfi myndatökumannsins Fannars Magnússonar og tónlistarmannsins Hákons Aðalsteinssonar við Austurfrétt um myndskeið úr austfirskri náttúru.„Fyrir nokkrum árum var ég á strandveiðum þar sem róið var út frá Borgarfirði. Mér fannst alltaf tilkomumikið að sigla undir bjarginu. Fuglahreiður er á hverri klettasyllu og mikið líf í klettunum.
Það er hægt að ganga eða hjóla yfir í Brúnavík og ég vil hrósa þeim sem komu að því að byggja upp stíginn yfir Brúnavíkurskraðið.“