Austfirskur matreiðslunemi með bronsverðlaun á Ólympíuleikum
Kristvin Þór Gautason, matreiðslunemi frá Egilsstöðum, var í liði Íslands sem um helgina endaði í þriðja sæti í Ólympíuleikum matreiðslunema.Halldór Hafliðason keppti fyrir Íslands hönd en Kristvin var honum til aðstoðar. Þriðji maður í hópnum var Dagur Gnýsson.
„Halldór er aðalkeppandinn en ég er varamaður hans og aðstoðarmaður. Hefði hann forfallast, til dæmis vegna Covid, þá hefði ég þurfti að græja allt án hans og Dagur aðstoðað mig.
En þar sem Halldór var heill þá var hlutverk mitt sem aðstoðarmanns í sjálfri keppninni að rétta honum það sem þurfti, kveikja á ofninum og sjá til þess að allt væri hreint,“ útskýrir Kristvin.
Verðlaun fyrir hreinlæti
Það gekk upp því Íslendingarnir fengu sérstök verðlaun fyrir hreinlæti og öryggi við eldamennskuna. „Dómararnir fylgdust með hvernig við unnum. Til dæmis hvort við værum snyrtilegir, það er ekki gott að vera með skítugt viskastykki hangandi undan á sér eða hversu fljótir við værum að þvo upp og ganga frá áhöldum. Ég reyndi að vera búinn að því innan mínútu frá því Halldór lagði þau frá sér og var með tuskuna á lofti þegar slettist á borðið.
Að mínu viti er hægt að sjá á útganginum á kokkinum hversu góður maturinn er, því hreinni kokkur því betri matur. Mér finnst þetta líka viðurkenning fyrir Ísland, hér er mikil áhersla á öryggi og hreinlæti.“
Mikil vinna fyrir keppnina
Kristvin hefur unnið á Nielsen á Egilsstöðum síðustu sumur og er þar í starfsnámi. Hann stefnir á að ljúka matreiðslunáminu í Menntaskólanum í Kópavogi í vor. Þar stunda þremenningarnir nám og þar fór undirbúningurinn fram undir leiðsögn kennara þeirra, Ægis Friðrikssonar.
„Það var ótrúlega gaman að taka þátt í þessu. Við lærðum mikið en vinnan var líka mikil. Þegar við tókum að okkur að keppa vorum við báðir í vinnu en undirbúningurinn varð þyngri meðfram skólanum.
Að baki eru margir klukkutímar við æfingar, svo sem í hönnum á réttinum og útliti disksins. Við vorum alltaf saman í því. Við komum síðan sjálfum okkur á óvart með árangrinum,“ segir Kristvin.
Besti árangur Íslands
Vegna Covid-faraldursins var keppnin haldin í netútsendingu. Undanúrslitin voru síðustu þriðjudag og þar tryggðu Íslendingarnir sér rétt til að keppa í úrslitum þeirra tíu efstu á föstudag. Ítalir unnu en Singapúr varð í öðru sæti. Í úrslitunum var eldaður kjúklingaréttur og svo eftirréttur eftir ströngum kröfum um hráefnisnotkun.
Þetta er í fimmta sinn sem Ísland tekur þátt í keppninni og vonast Kristvin til að árangurinn hvetji íslenska matreiðslunema áfram. „Þetta er besti árangur Íslendinga og ég vona að hann verði til þess við náum fyrsta sætinu næst. Sá sem kemur á eftir vill alltaf gera betur en sá sem var á undan.“
Kristvin til vinstri og Halldór til hægri. Mynd: Aðsend