Bók með ljóðum Þorsteins í Svínafelli komin út
Ljóðabókin Undir breðans fjöllum, úrval verka Þorsteins Jóhannssonar í Svínafelli, var formlega kynnt í gær. Það er fjölskylda Þorsteins sem valdi verkin í bókina.
Bókin, Undir breðans fjöllum, er um 300 bls. og inniheldur ljóð og lausavísur, æviágrip, myndir og skýringartexta. Efnið varpar ljósi á lífshlaup höfundar allt frá því að hann var barn og vitnar á margan hátt um aðstæður í byggðarlaginu á 20. öldinni. Þorsteinn var fæddur 1918 og hann lést 1998.
Yrkisefnin eru ýmist vegna hátíðlegra tilefna, sögulegra atburða eða um líðandi stund. Auk hinna stærri ljóða er víða slegið á létta strengi bæði í dagsins önn og við skemmtanahald. Einnig er skólastarfi Þorsteins gerð nokkur skil þar sem vísnagerð kemur mikið við sögu, bæði til að létta lund í skólastofunni og til að festa námsefnið í minni.
Bókaútgáfan Hólar gefur bókina út og annast dreifingu hennar.