Bókasöfn verða þjónustugáttir íbúa
Frá næstu áramótum verða almenningsbókasöfnin í þéttbýliskjörnum Fjarðabyggðar þjónustugáttir fyrir íbúa á hverjum stað. Í bókasöfnum á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði, Eskifirði og Norðfirði liggja frammi eyðublöð og á opnunartíma safnanna er tekið við umsóknum um þjónustu sveitarfélagsins. Jafnframt verður þar aðgangur að tölvu og aðstoð og ráðgjöf um hvernig nálgast má upplýsingar um starfsemi sveitarfélagsins á heimasíðunni.
Í tilkynningu frá Fjarðabyggð segir að endurskoðun á þjónustu sveitarfélagsins beinist annars vegar að því að nýta aðstöðu í bókasöfnum Fjarðabyggðar til að jafnræðis sé gætt í þéttbýliskjörnunum og hins vegar að því að auka skilvirkni og hagkvæmni í rekstri sveitarfélagsins. Heimasíðan er í endurskoðun til að einfalda aðgang að þjónustuupplýsingum og unnið er að skilgreiningum á þjónustunni m.a. til að símsvörun sveitarfélagsins geti greitt úr sem flestum fyrirspurnum og erindum.
Samhliða verður skrifstofu bæjarins í Neskaupstað lokað og starfsemi bæjarskrifstofunnar sameinuð á Reyðarfirði. Bæjarfulltrúar kynntu ákvörðun þessa efnis á fundum sem haldnir voru með starfsmönnum bæjarskrifstofanna 18.nóvember. Við upphaf kjörtímabils lá fyrir að stjórnsýslan yrði sameinuð á einum stað að sex árum liðnum. Ákvörðuninni er hrundið í framkvæmd nú vegna þess að leki og önnur vandamál hafa verið viðvarandi á skrifstofunni. Leigusali hefur sýnt ítrekuðum kröfum sveitarfélagsins um úrbætur og eðlilegt viðhald tómlæti og vinnuaðstæður eru ekki viðunandi. Sveitarfélagið var því knúið til að rifta samningi. Ber lokun skrifstofu í Neskaupstað því bráðar að en ráð hafði verið gert fyrir.