Boða til mótmæla við HSA
Efnt verður til mótmæla utan við höfuðstöðvar Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) á Egilsstöðum í hádeginu. Stuðningsmenn yfirlæknis Heilsugæslu Fjarðabyggðar standa fyrir mótmælunum og hyggjast leggja upp frá Reyðarfirði kl. 12 og aka að HSA á Egilsstöðum. Mótmæla á því að yfirstjórn HSA leysti yfirlækninn tímabundið frá störfum fyrir um 8 mánuðum og fól lögreglu að rannsaka meint misferli hans með fjármuni stofunarinnar.
Sýslumannsembættið á Eskifirði lét málið niður falla. Í kjölfarið tók Ríkisendurskoðun málið upp og vísaði embætti Ríkissaksóknara því á ný til sýslumannsembættisins, sem nú nýverið felldi málsrannsókn aftur niður. Er nú beðið úrskurðar Ríkisendurskoðunar um hvort þessar verði málalyktir eða málinu áfrýjað til Ríkissaksóknara.