Breyta í Skaftfelli
Fjórir efnilegir listamenn eiga verk á sýningunni Breyta í Skaftfelli Seyðisfirði. Verkin eru meðal annars afrakstur dvalar þeirra í gestavinnustofu menningarmiðstöðvarinnar.Listamennirnir eru Brák Jónsdóttir, Nína Óskarsdóttir, Mexíkóinn Hugo Llanes og Englendingurinn Joe Keys. Þrátt fyrir ólíkan bakgrunn og listsköpun eiga þau öll sameiginlegt að hafa útskrifast nýlega úr myndlistadeild Listaháskóla Íslands og starfa hérlendis.
Brák vinnur með samband náttúru og manns, Hugo félagslegar aðstæður fólks, svo sem flutning fólks milli landa, Joe horfir á hið daglega líf með þurri kímnigáfu og Nína fjallar um óefnisbundnar hugmyndir, svo sem heilagleika.
Þau notast við ýmsa miðla í list sinni, svo sem skúlptúra, bókverk, leir, málverk en gera líka verk sem hægt er að borða.
Hópurinn var valinn í samvinnu við deildarforseta myndlistardeildar Listaháskólans og boðið að dvelja í þrjár vikur á Seyðisfirði til að þróa tillögur sínar fyrir sýninguna. Þau vinna með ólíkar áherslur en þó er hægt að greina fíngerðan þráð sem býr til óræða tengingu milli verkanna, að því er segir í tilkynningu.
Hanna Christel Sigurkarlsdóttir stýrir sýningunni sem opin er til 22. maí.