BsA óttast skaðleg áhrif Stórhólsmáls
Stjórn Búnaðarsambands Austurlands hvetur sveitarfélög til að draga lærdóm af máli Stórhóls í Álftafirði og beita hörðum viðurlögum, miklu fyrr en raun bar vitni. Í ályktun sambandsins frá því í gær segir að heimildir búfjáreftirlits og dýralækna séu takmarkaðar og skaðinn mikill þegar svona sé komið. Stjórnin óttist áhrif slíkra mála á ímynd dilkakjötsframleiðslu bæði innanlands og utan, því nú á tímum ljósvakamiðla geti markaður skaðast um allan heim vegna fréttaflutnings eins og þessa. Jafnframt óskar stjórnin þess að Djúpavogshreppur og Matvælastofnun sjái til þess að málum verði komið í fullkomlega ásættanlegt ástand strax eða viðkomandi gert að hætta búskap ella.
Matvælastofnun kærði í vikunni ábúendur á Stórhóli í Álftafirði til lögreglu fyrir slæman aðbúnað og vanfóðrun á sauðfé. Féð reyndist mjög horað eftir veturinn og lömb sem drepist höfðu í sauðburði voru ekki fjarlægð úr fjárhúsunum.