Davíð Kristinsson Austfirðingur ársins 2021

Davíð Kristinsson, varaformaður björgunarsveitarinnar Ísólfs á Seyðisfirði og hótelstjóri á Hótel Öldu, hefur verið valinn Austfirðingur ársins 2021 af lesendum Austurfréttar. Davíð var tilnefndur fyrir jákvæðni, bjartsýni, dugnað og hjálpsemi í kjölfar skriðufallanna í desember 2020.

„Ég er stoltur en líka örlítið vandræðalegur. Þegar ég var tilnefndur fór ég að hugsa hvers vegna ég hefði verið það. Ég held að það sé að miklu leyti vegna þess að ég er heppinn að vera hluti af frábærri heild.

Það er er auðvelt að vera drífandi og orkumikill í svona samfélagi eins og hér á Seyðisfirði. Í björgunarstörfunum sem öðru hef ég frábæran hóp að baki mér sem gefur mér orku,“ sagði Davíð þegar hann tók á móti verðlaununum í vikunni.

Auðveldara að vera jákvæður

Í tilnefningu var sérstaklega minnst á að jákvæðni hans hefði veitt öðrum Seyðfirðingum innblástur. „Ég reyni að fókusera á það jákvæða í aðstæðum, ekki bara að eitthvað sé erfitt eða ömurlegt. Þótt eitthvað sé erfitt getur það reynst gefandi þegar því er lokið.

Mér finnst auðveldara að vera jákvæður en neikvæður. Það er erfitt og þreytandi að vera í neikvæðninni. Ég veit að ef ég er jákvæður þá er fólkið í kringum mig líka jákvætt.

Á vissan hátt er þetta eigingirni í mér. Ég nenni ekki að vera í gegnum fýlu, erfiðleika eða neikvæði. Þess vegna ýti ég viljandi undir jákvæðnina og spaugilegu hliðarnar.“

Jákvæður andi í samfélaginu

Hann segir það ekki hafa verið erfitt að halda í þessa jákvæðni og bjartsýni í erfiðum aðstæðum eftir skriðuföllin.

„Það er fullt af hlutum í lífinu sem eru ekki jákvæðir en þá þarf maður að finna eitthvað jákvætt frekar en einblína það neikvæða. Almennt hafa allir skilið að jákvæðnin er það sem kemur okkur í gegnum áfallið, sem skriðan var. En kannski voru einhverjir neikvæðir og ég hlustaði ekki á það. Það er enn af mínum göllum, að heyra ekki neikvæðnina.

En mér hefur fundist Seyðfirðingar vera jákvæðir. Það er drífandi og orka í bænum. Mér finnst fólk einbeitt á að ná því jákvæða og besta út úr þessu, til dæmis talar fallega um þá vinnu sem unnin hefur verið á skriðusvæðinu. Mér finnst einkennandi fyrir Seyðfirðinga að hafa trú á framförum og við gerum það áfram því skriðan verður aftur græn.“

Ánægður með að kominn heim

Sjálfur fór Davíð ekki varhluta af áhrifum skriðanna. Hús hans við Botnahlíð stórskemmdist svo fjölskyldan bjó í tæpt ár í öðru húsnæði. Hún flutti aftur til baka í byrjun desember, þegar búið var taka húsið í gegn.

„Það er mikil hamingja, meiri en ég átti von á, að vera kominn heim. Ég vissi að ég hlakkaði til að fara aftur í húsið okkar en að vera heimilislaus í ár varð erfiðra en ég hélt. Það er ekki sama að koma sér einhvers staðar fyrir og eiga sinn griðastað.

Við vorum nýbúin að taka húsið í gegn og vorum ánægð með það. Þetta var því verkefni sem við ætluðum okkur alls ekki í og tók ofboðslega á. En við erum ánægð með hvernig til tókst og það er gott að vera komin heim aftur.“

Davíð fékk flest atkvæði í kjörinu, sem fór fram á Austurfrétt í febrúar. Valið var milli átta aðila. Að launum fær hann viðurkenningarskjal, gjafabréf í mat og gistingu á Gistihúsinu á Egilsstöðum og ársáskrift að Austurglugganum.

Fjórða sinn sem titillinn fer á Seyðisfjörð

Austurfrétt hefur valið Austfirðing ársins frá árinu 2012. Þetta er í fjórða skipti sem nafnbótin fer á Seyðisfjörð og þriðja skiptið í röð.
Eftirtalin hafa áður verið valdir Austfirðingar ársins á Austurfrétt:

2020: Íbúar Seyðisfjarðar
2019: Jóhann B. Sveinbjörnsson
2018: Steinar Gunnarsson
2017: Ólafur Hr. Sigurðsson
2016: Þórunn Ólafsdóttir
2015: Tara Ösp Tjörvadóttir
2014: Tinna Rut Guðmundsdóttir
2013: Friðþór Harðarson og Sigurður Friðþórsson
2012: Árni Þorsteinsson

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar