Djúpivogur í vatnsútflutning
Djúpavogshreppur hyggst eignast þriðjungs eignarhlut í einkahlutafélaginu H2O WATN (Worldwide Aqua Transport Network). Meðeigendur eru Auðunn S. Ólafsson og Ólafur S. Ögmundsson. Uppi eru áform um útflutning á vegum fyrirtækisins á vatni með tankskipum sem kæmu til með að liggja við festar í Fossárvík í Berufirði, en vatnið yrði tekið úr Nykurhyl, sem er einungis 1,5 km frá væntanlegum legustað skipanna.
Í fundargerð sveitarstjórnar Djúpavogshrepps, frá 3. september sl., kemur fram að reiknað er með að skip allt að 80 þús. tonn myndu lesta vatnið og að lestun hvers farms tæki um 2 sólarhringa. Enn stendur á ákveðnum leyfum / samþykki hins opinbera, en unnið hefur verið að framgangi málsins m.a. í samráði við landeigendur í um það bil eitt ár.
Tilgangur H2O WATN er að vinna og selja vatn til útflutnings til neyslu og til iðnaðar -og landbúnaðarnotkunar, vinna að markaðsmálum og sölu framleiðsluvara og annar skyldur atvinnurekstur, auk reksturs fasteigna.