Ég um mig frá mér til þín

„Meginhugmyndin að baki þessu er að tengja börn og unglinga við listir og menningu og hvetju þau á sama tíma til að standa með sjálfum sér, þora að vera eins og þau vilja vera og styrkja þannig sjálfsmynd þeirra til framtíðar,“ segir Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir, verkefnisstjóri menningarhátíðarinnar BRAS sem hefst formlega í dag.

Þetta er fimmta árið sem sveitarfélögin á Austurlandi í samvinnu við Austurbrú halda úti sérstakri lista- og menningarhátíð fyrir unga fólkið en tiltækið hefur tekist afar vel gegnum árin og segir Halldóra að það sé sífellt auðveldara að fá listamenn til að koma að verkefninu. Þetta árið hefur einmitt verið sérstök áhersla á að austfirskir listamenn leggi lóð sín á vogarskálarnar en Halldóra segir auðvelt að bæta atriðum við hátíðina ef fleiri listamenn hafa áhuga að taka þátt. Þeir listamenn setja upp opnar og fjölbreyttar listasmiðjur í öllum byggðakjörnum en smiðjurnar eru margvíslegar. Til dæmis verða settar upp klippimyndasmiðjur og sirkussmiðjur auk þess sem hægt verður að læra brúðugerð og auðvitað myndlist svo fátt eitt sé nefnt.

Um 30 viðburðir eru þegar á dagskrá en hátíðin fer að hluta til fram í skólum fjórðungsins og stendur að minnsta kosti út októbermánuð og mögulega lengur en það.

„Þeir viðburðir sem fram fara innan veggja skólanna eru lokaðir öðrum en börnunum sjálfum en aðrir eru opnir og allir þangað velkomnir,“ segir Halldóra. „Við reynum að hafa frítt inn á þá alla en í einstöku tilfellum þarf að greiða einhvern lágmarks aðgangseyri.“

Heiti hátíðarinnar nú hefur vakið athygli en það er Ég um mig frá mér til þín. Halldóra segir ljóst að einhverjir kunni að setja út á fallbeyginguna en þetta sé með ráðum gert.

„Nafnið á að fá fólk til að staldra við og kannski sjokkera pínulítið líka. En þetta er vísun í hvað hátíðin stendur fyrir.“

Dagskrá hátíðarinnar auk annars má finna á fésbókarvef BRASAusturlands.

Sífellt meiri þátttaka og áhugi er á menningarhátíð barna og unglinga sem fram fer í öllum byggðakjörnum Austurlands á næstu tvo mánuði hið minnsta. Mynd Austurbrú.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar