Embættisfærsla aftur til ríkissaksóknara
Ríkisendurskoðun hefur lokið athugun á embættisfærslu yfirlæknis Heilsugæslu Fjarðabyggðar og vísaði í kjölfarið máli hans aftur til ríkissaksóknara til frekari meðferðar. Ríkissaksóknari hafði áður hafði vísað því frá, líkt og lögregluembættið á Eskifirði þar áður. Þá hefur Landlæknisembættið einnig lokið sínum athugunum á verklagi læknisins og gerir athugasemdir við það, en þó ekki þannig að ástæða sé til áminningar eða íþyngjandi aðgerða af hálfu embættisins.
Landlæknisembættið hefur nýverið sent frá sér skýrslu vegna athugunar á faglegum vinnubrögðum yfirlæknis Heilsugæslu Fjarðabyggðar. ,,Bent er í skýrslunni á atriði sem má lagfæra, ekki síst hvað varðar skráningu í sjúkraskrár og atriði varðandi verklag,“ sagði Matthías Halldórsson landlæknir fyrr í vikunni. ,,Ekkert bendir hins vegar til þess að sjúklingar hafi þurft að líða vegna þess. Mikilvægt er líka að sjúklingar eru ánægðir með þá þjónustu sem læknirinn veitir. Landlæknir bendir á það sem betur mætti fara varðandi ofangreinda þætti, en við teljum að ekki sé ástæða til áminningar eða annarra íþyngjandi aðgerða vegna þessa. Það verður hins vegar skoðað á ný þegar skýrsla Ríkisendurskoðunar leggur fyrir og í ljósi þess sem þar kann að koma fram,“ sagði Matthías.
Ríkisendurskoðun hefur eins og fyrr segir vísað máli læknisins aftur til ríkissaksóknara, sem samkvæmt orðum Matthíasar kallar á einhvers konar endurskoðun málsins hjá Landlæknisembættinu.
Yfirlæknirinn var af yfirstjórn Heilbrigðisstofnunar Austurlands leystur tímabundið frá störfum í febrúar vegna gruns um misferli.
Heilbrigðisráðherra hefur verið afhent kröfugerð með hartnær 800 undirskriftum íbúa í Fjarðabyggð, þar sem þess er krafist að Hannes komi aftur til starfa og yfirstjórn HSA víki.