Engin loðna en 10% meiri botnfisksafli í mars en í fyrra

Heildarafli íslenskra skipa nam 108.612 tonnum tonnum í mars, sem er verulegur aflasamdráttur frá sama mánuði í fyrra er aflinn var 169.690 tonn.  Þar vegur þyngst að engin loðnuveiði var í mars en botnfiskafli var hins vegar tæplega 10% meiri en í mars 2008.

dsc02767.jpg

Í frétt frá Hagstofunni segir m.a.: „Botnfiskafli jókst um rúm 6.000 tonn frá mars 2008 og nam 60.000 tonnum. Þar af var þorskaflinn 27.000 tonn og jókst um tæp 5.000 tonn og karfaaflinn rúm 11.000 sem var aukning um 1.300 tonn milli ára. Ýsuaflinn stóð hins vegar nokkurn vegin í stað milli ára í tonnum talið og nam um 11.600 tonnum, en  ufsaaflinn dróst saman um 1.100 tonn samanborið við mars 2008 og nam um 5.000 tonnum.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 45.000 tonnum sem er um 68.000 tonnum minni afli en í mars 2008. Samdrátt í uppsjávarafla má rekja til þess að engin loðna var veidd nú í marsmánuði, samanborið við tæplega 96.000 tonna veiði árið áður. Hins vegar var um 22.000 tonna aukning í veiði á kolmunna á milli ára og var heildarafli kolmunna um 39.000 tonn. Auk þess veiddust í mars rúm 5.000 tonn af gulldeplu og 500 tonn af síld

Flatfiskaflinn var rúm 2.500 tonn í mars og jókst um tæp 800 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 444 tonnum samanborið við 728 tonna afla í mars 2008.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar