Eyrnakonfekt fyrir Austfirðinga

Eyrnakonfekt eru tónleikar með nýjum íslenskum sönglögum sem haldnir verða á Eskifirði og Egilsstöðum næstu daga.

Bæði lög og textar eru eftir Þórunni Guðmundsdóttur. „Tónlistin er ljóðræn, ljúf og hress. Textarnir eru fyndnir orðaleikir. Það þarf að hlusta vel til að ná öllum bröndurunum og þótt við eigum öll að vera mjög skýr í framburði þá erum við með textablöð,“ segir Erla Dóra Vogler, söngkona.

Erla Dóra er Austfirðingum að góðu kunn, alin upp í fjórðungnum og hefur verið áberandi í tónlistarstarfi hans um áraraðir. Hún er einn fjögurra söngvara í hópnum.

„Við syngjum ný íslensk sönglög, einsöng, dúetta, tríó og kvartetta. Íslensk tónskáld semja ekki mikið af samsöngslögum, mest kór- eða einsöngslög en Þórunn semur fyrir stærri hóp söngvara eins og algengara er í Evrópu sem er mjög skemmtileg.“

Með söngvurunum er píanóleikarinn Eva Þyri Hilmarsdóttir en hún er alinn upp á Eskifirði og hóf sitt tónlistarnám hjá Gillian Haworth.

Hópurinn kemur fram í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði klukkan 20:00 í kvöld og á sama tíma á morgun í Egilsstaðakirkju.

„Lyktar illa, úldin og súr,
íslensk fæða er frekar þrá og klúr.
Svoddan rusl við þiggjum samt með þökkum
til þorrablótanna við jafnan hlökkum.“

„Við Tjarnarbakkann endurnar safna í sarpa
og svanirnir af fögnuði öndunum varpa!
Aldrei fyrr ég leit þá svo fáránlega hvíta.
Fáklæddar mæðurnar frumburðunum snýta
og franskbrauði grýta.“

„Ávaxtasalat er æði,
smjör yfir laukinn ég bræði
og fæ mér sultutauið,
þetta er ekki svo nauið.
Magn set ég ofar en gæði.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar