Fjarðarheiði gengin fyrir bættum samgöngum

Hópur Seyðfirðinga og Héraðsbúa gengur nú í fjórða sinn yfir Fjarðarheiði til að vekja athygli á óviðunandi  ástandi samgangna við Seyðisfjörð. Í því skyni er efnt til almennrar hópgöngu yfir Fjarðarheiði a.m.k. ársfjórðungslega þar til komin eru jarðgöng sem tengja Seyðfirðinga við önnur byggðalög. Gangan hófst í morgun kl. 9 og er gengið frá Seyðisfirði til Egilsstaða. Nú er norðaustanátt á heiðinni, slydda og um 11m/sek. Í dag er Haustroðahátíð á Seyðisfirði og fjölbreytt dagskrá í boði fyrir gesti og heimamenn.

fjararheii.jpg

 

 

-

Miklar framkvæmdir eru nú á Fjarðarheiði vegna vinnu við Fjarðarárvirkjun og unnið í kapp við aðvífandi vetrarríki./SÁ

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar