„Fjögurra daga stanslaust stuð framundan“

„Þær verða ekkert mikið skemmtilegri hátíðirnar hér austanlands, því get ég lofað,“ segir Sævar Guðjónsson, forsprakki Freeride hátíðarinnar sem fer fram um næstu helgi í þriðja skiptið.

Hátíðin fer fram á skíðasvæðinu í Oddsskarði sem endranær en hér er um að ræða hátíð fyrir bæði skíða- og brettafólk sem vill vera frjálst í brekkunum og fylgir því aldrei troðnum skíðabrautum. Hátíðarhaldarar fengu að þessu sinni tveggja milljóna króna styrk og fyrir vikið er dagskráin óvenju troðin og fjölbreytt alla fjóra hátíðisdagana.

Sævar segir skíða- og brettaiðkun vissulega aðalatriðið plús að njóta austfirskrar náttúru en mun fleira komi hér til sem ætti að heilla alla þá sem láta sjá sig.

„Þetta verður súpergott partí alla helgina og spáin virðist vera sérdeilis fín. Það er yfirleitt veðrið sem ræður því hversu margir koma og taka þátt og bókanir eru byrjaðar að detta til okkar. Fyrir utan að bjóða fyrirtaks aðstæður í brekkunum þá hendum við í eitt stykki skíðabíó, námskeið fyrir byrjendur sem lengra komna með mörgum toppkennurum og fjallamönnum og auðvitað er ekkert vit í öðru en bjóða í partí þegar dimma tekur. Þar erum við einnig með toppfólk til að gleðja mannskapinn og nægir kannski að nefna hljómsveitina FM Belfast. Fjögurra daga stanslaust stuð framundan.“

Hátíðin er fyrst og fremst ætluð til að koma Austurlandi á kort skíða- og brettaáhugafólks en töluvert stór hópur þeirra unir sér best utan brauta en innan og það er til þeirra sem ná á til með þessari hátíð. Sævar segir Oddsskarð hafa allt til að bera ekkert síður en þekktari skíðasvæði landsins.

Hátíðin hefst á fimmtudaginn kemur um leið og skíðasvæðið opnar klukkan 16 en dagskrána alla má sjá hér.

Mynd: Tindar Austfjarða bjóða upp á magnaða umgjörð fyrir skíða- og brettafólk og ekki skemmir að lagt er upp úr góðri dagskrá líka utan við brekkurnar. Mynd Instagram/AusturlandFreeride

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar