Fjörtíu Austfirðingar flúðu gosið í Vestmannaeyjum

Talið er að um fjörtíu einstaklingar, sem nú eru með lögheimili á Austurlandi, hafi flúið þegar gosið í Vestmannaeyjum hófst fyrir sléttum 44 árum. Skráning yfir þá sem flúðu eyjarnar er nú á lokametrunum.

„Núna vantar okkur helst aðkomufólkið sem var á vertíð,“ segir Ingibergur Óskarsson sem stýrt hefur skráningarverkefninu frá árinu 2013 en það var sett á laggirnar af byggðasafni Eyjamanna, Sagnheimum árið 2010.

Fólksflutningar frá Eyjum hófust strax um leið og gosið hófst aðfaranótt þriðjudagsins 23. janúar árið 1973. Flestir fóru með bátum en nokkrir með flugi og fáeinir nokkrum dögum síðar. Við komuna til Reykjavíkur var fólkið skráð og hvert það fór.

Ekki var hins vegar skráð hver var með hvaða bát en það er eitt af því sem Ingibergur og samstarfsfólk hafa reynt að grafast fyrri um. Nú er búið að skrá ferðir yfir 4900 einstaklinga úr Vestmanneyjum í kringum gosið.

Leita að vertíðarfólkinu

Íbúaskrá frá 1972 hefur reynst heilladrjúg en af henni er eftir að rekja ferðir 180 einstaklinga. Ingibergur segir að um 150 þeirra séu látnir, 20 erlendis og tíu þeirra hérlendis. Þungi vinnunnar nú felst í að hafa uppi á þeim.

„Milli íbúaskrárinnar og gosnæturinnar er eyða þannig við vitum ekki nákvæmlega hverjir voru á Eyjum,“ segir hann og nefnir vertíðarfólkið. Eins segir hann frá fjölskyldu sem flutti á Reyðarfjörð skömmu áður en gosið hófst.

Níu á Eskifirði

Sett hefur verið bæði upp Facebook-síða og sérstök heimasíða í tengslum við átakið og nú unnið að því að fá fólk til að líta yfir farþegalistana til að staðfesta að þeir séu réttir. Eins hefur verið reynt að hafa uppi á hvar fólkið sem flýði eyjarnar er búsett í dag.

Samkvæmt tölum Ingibergs erum um 40 einstaklingar búsettir á Austfjörðum, flestir á Eskifirði eða níu. Við þessa tölu má bæta 19 einstaklingum í sveitarfélaginu Hornafirði en inni í þeirri tölu er áhöfnin af hornfirska bátnum Bergá sem var í Eyjum þegar gosið hófst og tók þátt í björgunaraðgerðunum.

Ingibergur hefur mikið notast við Facebook í upplýsingasöfnun sinni. „Facebook hefur gert þetta mögulegt. Með því er auðveldara að ná í fólk. Eldra fólkið er ekki endilega þar en þannig nær maður í börn og ættingja.“

Ef einhverjir hafa upplýsingar um fólk sem var komið til Eyja væri gott að fá sendar upplýsingar á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., nafn einstaklings, fæðingardag og ár, heimilisfang 1973, og hvernig viðkomandi fór frá Eyjum ef vitað er.

Fjöldi þeirra sem flúðu gosið og bjuggu á Austfjörðum í maí 2016

Vopnafjörður 7
Egilsstaðir 2
Seyðisfjörður 5
Reyðarfjörður 8
Eskifjörður 9
Norðfjörður 7
Fáskrúðsfjörður 1
Stöðvarfjörður 5
Breiðdalsvík 1

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar