Fljótsdalshérað vill Arnhólsstaði
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað hefur höfðað eignardómsmál fyrir
héraðsdómi Austurlands þar sem það fer fram á að því verði dæmdur
eignarréttur að félagsheimilinu Arnhólsstöðum í Skriðdal og lóð þar í
kring.
Félagsheimilið var byggt á þriðja áratug seinustu aldar af Ungmennafélagi Skriðdæla. Eftir að dró úr virkni félagsins tók Skriðdalshreppur við rekstri hússins. Fljótsdalshérað segir hreppinn hafa farið með full eignarráð frá sjöunda áratugnum en byggt var við húsið á níunda áratugnum. Skriðdalshreppur sameinaðist síðar inn í sveitarfélagið Fljótsdalshérað.
Það er skráð eigandi félagsheimilisins hjá Fasteignamati ríkisins. Engar formlegar samþykktir liggja fyrir um yfirtöku Skriðdalshrepps á félagsheimilinu en Fljótsdalshérað byggir gögnum sem sýna að hreppurinn hafi alfarið haldið utan um rekstur þess.