„Flug og fákar mun gleðja hjörtu allra tækjaóðra Austfirðinga“

„Ég er ekki í vafa um að hátíðin mun gleðja hjörtu allra tækjaóðra Austfirðinga og ég veit sem er að það er nóg af tækjaóðum Austfirðingum,“ segir Þura Garðarsdóttir, flugradíómaður og forsprakki fyrstu flughátíðar á Egilsstöðum um 30 ára skeið.

Rússneskar YAK, bandarísk kafbátaleitarvél, þyrla Landhelgisgæslunnar, Bombardier áætlunarvél Icelandair og fisvélar, auk fjölda forvitnilegra ökutækja sem ekki sjást alla jafna á götum úti er meðal þess sem gestir hátíðarinnar Flug og fákar geta barið augum á Egilsstaðaflugvelli á sunnudaginn kemur. Hátíðin var upphaflega á dagskrá fyrir ári síðan en Covid breytti þeim áætlunum með skömmum fyrirvara. Nú skal hins vegar láta slag standa og segir Þura að ef veðrið haldist gott eða betra en gott sé von á heljarinnar veislu á Egilsstaðaflugvelli milli 12 og 16 á sunnudag.

„Okkur fannst kannski kominn tími á nýja góða hátíð á Austurlandi og þar sem ég er sjálf forfallinn flugáhugamaður og ólst nánast upp á svona sýningum þá ákváðum við að kýla á þetta á síðasta ári. Covid breytti því en ekki meira en svo að hátíðin nú verður bara betri og ítarlegri en þá var planlagt.“

Fyrir utan merkileg farartæki af lofti og láði verður mjög ítarleg dagskrá meðan á sýningunni stendur. Þura vill þó ekki opinbera þá dagskrá að svo stöddu þar sem veðurfar mun skipta sköpum um hvað verður hægt að gera og hvað ekki. Hún verður kynnt á sunnudaginn kemur en veðurspáin þegar þetta er skrifað gerir ráð fyrir logni en örlítilli vætu þann dag.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar