Framkvæmdum á Vopnafirði miðar vel
Framkvæmdum við nýja fiskmjölsverksmiðju HB Granda á Vopnafirði miðar vel. Á vef HB Granda segir að þær séu á áætlun. Um helgina átti að steypa verksmiðjugólfið en það tafðist fyrir helgi vegna veðurs. Fyrstu bílarnir sem flytja strálgrindina í verksmiðjuhúsið komu til Vopnafjarðar í lok vikunnar.
Grunnflögur hússins er um 1.200 fermetrar. Það hýsir stjórnstöð verksmiðjunnar, skrifstofur, rannsóknastofu og starfsmannarými.
Um helgina var sett upp stálgrind fyrri þjónustuhús sem verður ofan á mjöltökunum og lyftuhús. Næst verður byrjað að reisa strálgrindina í sjálfu verksmiðjuhúsinu. Samhliða því verða ýmis tæki, sem voru í verksmiðju Faxamjöls í Reykjavík, flutt inn á verksmiðjugólfið.
Héðinn hf. hefur yfirumsjón með framkvæmdunum en meðal undirverktaka eru Mælifell ehf., sem sér um alla steypuvinnu og ES vinnufélar, sem sá um allar jarðvegsframkvæmdir á byggingarsvæðinu.