Freeride Festival tókst framar vonum
„Mér telst svona til að um 500 manns hafi í heildina komið að hátíðinni og þetta gæti ekki hafa tekist betur,“ segir Sævar Guðjónsson, forsprakki skíðahátíðarinnar Austurland Freesride Festival, sem lauk um helgina.
Þetta var í þriðja skiptið sem hátíðin er haldin en hugmyndin að freista þess skíða- og brettaáhugafólks sem kýs að renna sér um utan hefðbundinna skíðasvæða. Dagskráin aldrei verið eins fjölbreytt og nú og það allra besta segir Sævar hafa verið að veðrið hafi leikið við gesti alla fjóra dagana.
„Ég held við getum alveg verið stolt af hversu vel allt gekk fyrir sig. Engin áföll né vandræði heldur eiginlega þvert á móti voru gestirnir afar sáttir og skemmtu sér frá morgni til kvölds.“
Aðspurður hvort ekki verði framhald á þessari hátíð segir Sævar að annað sé útilokað. „Það er ég viss um. Hátíðin er smám saman að komast á kort þeirra sem áhuga hafa á þessu og við kjósum fremur að hún vaxi hægt og bítandi en það verði einhver sprengja. Auðvitað væri hægt að koma fjölda fólks fyrir um alla firði ef sprenging yrði í gestafjölda en við erum mjög sáttir við að það bætist hægt og bítandi í hópinn.“
Mynd: Veðurfar skiptir jafnan miklu máli og fengu gestir að þessu sinni gott veður alla hátíðardagana. Instagram/AusturlandFreeride