Fyrirlestur um gróðurfarssögu Héraðs
Vísindagarðurinn vill vekja athygli á Vísindakaffi á morgun, þar sem Sverrir Aðalsteinn Jónsson líffræðingur mun halda fyrirlestur um gróðurfarsögu á Fljótsdalshéraði síðustu tvö þúsund árin. Fyrirlesturinn verður haldinn í Gistihúsinu Egilsstöðum og hefst kl. 16:30.