Fyrsta Múlaþing nýrrar ritstjórnar komið út

Út er komið 44. hefti Múlaþings, byggðasögurits Austfirðinga. Ný ritnefnd og ritstjóri halda í fyrsta sinn utan um útgáfuna.

Sögufélag Austurlands tók við útgáfu Múlaþings árið 2020 um það leyti sem 43. heftið í röðinni kom út.

Unnur Birna Karlsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Egilsstöðum er ritstjóri en í ritnefnd eru Elsa Guðný Björgvinsdóttir, safnstjóri Minjasafns Austurlands, Páll Baldursson verkefnastjóri hjá Austurbrú og Friðrik Á. Þorvaldsson, kennari á Eskifirði.

Meðal efnis í blaðinu nú er umfjöllun Helga Hallgrímssonar um steinristur á Héraði, Nikólína Bóel Ólafsdóttir skrifar um Guðrúnu Brunborg frá Reyðarfirði, Kristján Ingimarsson ritar um Síberíu, mjólkurstöðina á Djúpavogi og örlög hennar.

Eins má nefna greinar um kornmyllur og myllusteina á Héraði, þjóðsögu úr Reyðarfirði og ferðasaga um ævintýralega snjósleðaferð í Hveravelli árið 1984. Þá birtast í Múlaþingi sendibréf frá árinu 1932 frá kennara á Reyðarfirði til bónda í Tunguhreppi á Héraði og rannsóknaskýrsla um veghleðslur á Breiðdalsheiði, samgönguminjar sem hafa sögulegt gildi.

Múlaþing hóf göngu sína árið 1966 og var þá gefið út af Sögufélagi Austurlands. Við ellefta hefti árið 1981 tóku kaupstaðir og sýslur svæðisins við útgáfunni. Form þeirra breyttist og loks var það Samband sveitarfélaga á Austurlandi sem stóð að útgáfunni. Útgáfusagan er rakin í grein Sigurjóns Bjarnasonar í nýjasta heftinu.

Frá því seint á síðasta ár hafa fyrstu 42 hefti Múlaþings verið opin almenningi í gegnum vefinn Timarit.is

Markmið Múlaþings hefur jafnan verið árleg útgáfa, þótt stundum hafi hléin orðin lengri. Sögufélagið hefur nú sett stefnuna á útgáfu að ári. Efnissöfnun er þegar hafin. Gerð er krafa um að efnið tengist Austurlandi á einhvern hátt en efnistökin mega vera fjölbreytt, varða hvað sem snertir sögu Austurlands, náttúru, menningu, menntamál, atvinnuvegi, listir, ferðasögur, þrekvirki og fórnfýsi, persónusögur og samfélag og svo framvegis.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.