Góð mæting á fræðslufund um einelti
Góð mæting var á EKKI MEIR fræðsluerindi Æskulýðsvettvangsins, sem haldið var í Björgunarsveitarhúsinu á Egilsstöðum fyrir skemmstu.
Ríflega 30 manns tengdir íþróttahreyfingunni, skólakerfinu og ýmiskonar tómstundastarfi fyrir börn hlýddu þar á Kolbrúnu Baldursdóttur sálfræðing fjalla um einelti og viðbrögð við því.
Margt gagnlegt kom fram á fyrirlestrinum en hann byggði á bókinni EKKI MEIR sem Kolbrún gaf út nýverið. Á fundinum var aðgerðaráætlun Æskulýðsvettvangsins gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun dreift, en nálgast má áætlunina hér á vef Æskulýðsvettvangsins.
Kolbrún hefur farið víða um land á vegum Æskulýðsvettvangsins en hér var það UÍA sem sá um fyrirlesturinn.