Hafnar fyrningu aflaheimilda
Bæjarstjórn Hornafjarðar lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þeirra óvissu kominn er upp í rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi á Hornfirði. Nú þegar hefur ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að fara svokallaða fyrningarleið á úthlutuðum kvóta valdið fyrirtækjum skaða og sett rekstur þeirra í uppnám. Auk sjávarútvegsfyrirtækja hefur þetta mikil áhrif á nýsköpun og þau fyrirtæki sem hafa atvinnu af þjónustu við sjávarútveginn.Í fréttatilkynningur segir að bæjarstjórn Hornafjarðar skori á ríkisvaldið að falla nú þegar frá ákvörðunum um fyrningu aflaheimilda. „Sjávarútvegurinn er sú undirstöðuatvinnugrein sem aflar þjóðinni stóran hluta gjaldeyristekna og við núverandi ástand í þjóðfélaginu er það afar varhugavert að setja þessa atvinnugrein í algjört uppnám eins og nú stefnir í.
Jafnframt er mikilvægt að komið sé í veg fyrir upplausnarástand í sjávarútvegi við hverjar alþingiskosningar. Því hvetur Bæjarstjórn Hornafjarðar til þess að hafin verði endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu með það að markmiði að skapa sátt um kerfið til framtíðar til þess að efla stöðu byggðanna."