Hátíðin Útsæðið alls ekki aðeins fyrir Eskfirðinga

„Margir halda að þetta sé einhver einkahátíð fyrir Eskfirðinga en svo er alls ekki og hver einasta sála mikið meira en velkomin til okkar,“ segir Kristinn Þór Jónasson, forsprakki hátíðarinnar Útsæðis á Eskifirði.

Menn slá ekki slöku við í Fjarðabyggð þegar kemur að ýmsum skemmtunum og uppákomum í sveitarfélaginu þessa dagana. Á morgun hefst bæjarhátíðin Útsæði á Eskifirði en þar er um pakkfulla dagskrá að ræða fyrir alla aldurshópa langt fram á sunnudag.

Kristinn Þór segir hátíðina verða með hefðbundnu sniði en Útsæði tekur nánast alveg við af menningarhátíðinni Innsævi sem verið hefur í gangi síðustu vikur. Reyndar er fyrsti dagur Útsæðis helgaður sýningu listamannanna Siggu Björg Sigurðardóttur og Mikael Lind í félagsheimilinu Valhöll en sú sýning er hluti af Innsævi.

Blásið verður í partíglæðurnar aftur á föstudagskvöld þegar sundlaugadiskó glymur um bæinn og síðar það kvöld stígur Sóli Hólm á stokk með uppistand. Kassabílarallí Tanna Travel er af mörgum talin rúsínan í pylsuendanum á laugardeginum en kvöldvakan það kvöldið er þekkt langt út fyrir Eskifjörð. Ekki síst þegar grillmeistarar hátíðarinnar grilla tíu lambaskrokka fyrir gesti og allt ókeypis. Dúndrað verður í góðan dansleik í lokin en 2.500 króna aðgangseyririnn fer óskertur til að bæta aðstöðuna í Valhöll.

Lokahnykkur Útsæðis er svo á sunnudeginum þegar kvikmyndasýningar eru í boði fyrir alla sem áhuga hafa.

Það sem eitt sinn hét afmælishátíð Eskifjarðar heitir nú Útsæðið og er nú hátíð opin öllum sem áhuga hafa á skemmtunum. Mynd Útsæðið

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar