Helgin: Aðventustemming færist yfir
Annar sunnudagur aðventu er framundan og viðburðir helgarinnar litast margir af því.Þannig koma Dúkkulísurnar Erla, Gréta og Erla saman í Tehúsinu annað kvöld og flytja uppáhalds jólalög sín auk laga af jólaplötu Dúkkulísanna. Valný Lára Jónsdóttir verður sérstakur gestur.
Á Breiðdalsvík verður á sunnudag jólabingó Ungmennafélagsins Hrafnkels Freysgoða til styrktar starfi félagsins.
Gallerí Snærós og Kaffi Kvörn bjóða upp á jólaglögg og kaffi í húsnæði Snærósar milli klukkan 17 og 19 á morgun. Þar verður úrval af myndlist, handverki og nýbrenndu kaffi. Eftir það verður síðan spurningakeppni með jólaþema á Kaffi Söxu.
Aðventuhátíðir eru víða í kirkjum, meðal annars á Egilsstöðum, Vallanesi og í Fljótsdal. Þá verður gerð önnur tilraun til að kveikja á jólatré Djúpavogs á sunnudag auk þess sem haldið verður áfram í Fjarðabyggð.
Á morgun klukkan 15:00 verður bókin Söngvar norðursins kynnt í Bókakaffi á Egilsstöðum. Hún inniheldur þýðingar Björns Ingvarssonar frá Egilsstöðum á ljóðum Inúíta frá Grænlandi og Kanada.
Á Seyðisfirði hefst klukkan tíu í fyrramálið prentsmiðja fyrir börn og ungmenni í vinnustofu Skaftfells að Öldugötu 14 á Seyðisfirði. Linus Lohmann kynnir þar mismunandi prenttækni. Á hádegi á sunnudag verður afrakstur smiðjunnar á jólamarkaði í gallerí Herðubreiðar.
Annað kvöld verður á Aski haldið pílukastmót. Er það til styrktar pílufélags sem verið er að stofna á Fljótsdalshéraði.