Helgin: Regnbogahátíðin, LungA, Innsævi, Útsæði – og fleira!
Óhætt er að segja að dagskrá helgarinnar á Austurlandi sé stútfull. Fyrsta Regnbogahátíð fjórðungsins hefst í dag, á sama tíma og uppskeruhátíð LungA fer fram á Seyðisfirði. Í Fjarðabyggð halda viðburðir á vegum menningarhátíðarinnar Innsævis áfram og á Eskifirði er bæjarhátíðin Útsæðið í fullum gangi.Regnbogahátíðin verður sett við Hús handanna á Egilsstöðum klukkan fimm. Málaður verður regnbogi á göngu- og hjólastíg í miðbænum áður en fyrsta gleðiganga Egilsstaða verður gengin upp í Tjarnargarðinn þar sem dagskrá verður á sviði. Viðburðir á vegum hátíðarinnar verða einnig á Seyðisfirði í kvöld og á fjölskylduhátíð LungA sem hefst á hádegi á morgun.
LungA hefur staðið yfir í vikunni og klukkan fimm hefjast sýningar á afrakstri listasmiðja vikunnar í bænum. Á morgun verður fjölskylduhátíð við Herðubreið þar sem meðal annars koma Sirkus unga fóklsins, Improv Ísland og fleiri. Bæði í kvöld og á morgun eru stórtónleikar í bænum þar sem fram koma nokkur af stærstu nöfnum íslenskrar tónlistar í dag, svo sem Birnir, Bríet og Svala.
Í Skaftfelli les rithöfundurinn A. Kendra Greene upp úr bók sinni um furður íslenskra safna klukkan 16:00. Bók hennar fékk frábærar viðtökur er hún kom út árið 2020 og komast á lista Financial Times, Slate og Smithsonian yfir bestu bækur ársins.
Bæjarhátíð og tónlist í Fjarðabyggð
Bæjarhátíðin Útsæðið hófst í gær og heldur áfram yfir helgina. Í kvöld er sundlaugardiskó og uppistand með Sóla Hólm í Valhöll, á morgun dagskrá í miðbænum sem hefst á kassabílarallíi á hádegi en frá 18 er kvöldvaka með tónlist og 10 grilluðum lambaskrokkum.
Margvíslegir viðburðir verða á vegum listahátíðarinnar Innsævis í Fjarðabyggð. Má þar meðal annars nefna þátttökugjörninginn „2x2 rýmisskynjun: ævintýraferðir“ í Stríðsárasafninu á Reyðarfirði. Tvíeykið Kunningjar býður þar áhorfendum að staldra við og beina sjónum sínum að hinu vanmetna í umhverfinu til að víkka út skilning á rýmisskynjun og skipulagi.
Á Beljanda á Breiðdalsvík er enn í gangi sýningin „Ég tala pínu íslensku“ með verkum Marc Alexander og í Þórsmörk í Neskaupstað er sýning Selmu Hreggviðsdóttur, Cranioplasty. Þar eru verk Eskfirðingsins Selmu Hreggviðsdóttur sem byggja á reynslu hennar við að vinna úr áverka sem hún varð fyrir í fyrra. Hún dvaldi í heimahúsum eftir langa spítaladvöl til að ná bata.
Inn í Innsævið blandast síðan tónlistarhátíðin Tónaflóð í Neskaupstað. Doddi litli mætir í Beituskúrinn í kvöld og á morgun til að halda uppi í stuðinu. Þar verður líka á morgun raftónlistarmaðurinn Mikael Lund, en hann hefur verið tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna tvö ár í röð. Á sunnudag kl. 16 mætir Pétur St. Arason með gítarinn í Þórsmörk og flytur þar mansöngva og tregaljóð.
Útimessa í Loðmundarfirði
Boncyan spilar í Stúdíó 23 á Seyðisfirði í kvöld og Aski á Egilsstöðum annað kvöld. Um er að ræða popprokkþríeyki úr Reykjavík. Danshljómsveit Friðjóns þarf hins vegar vart að kynna fyrir Austfirðingum. Hún telur í nokkur vel valin lög á Tehúsinu á Egilsstöðum annað kvöld klukkan níu. Fyrr um daginn, eða milli 12 og 16, hefur Bylgjulestin viðkomu á bílaplaninu þar utan við.
Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson hefur verið með tónleika ásamt gestum í Fjarðarborg Borgarfirði síðan á þriðjudag. Síðustu tveir tónleikarnir verða í kvöld og á morgun.
Ferðafélag Fjarðamanna leggur á Valahjalla klukkan tíu í fyrramálið. Hist verður við afleggjarann til Vöðlavíkur og gengið í fylgd Önnu Berg Samúelsdóttur.
Árleg sumarmessa í Kyppsstaðakirkju, Loðmundarfirði, verður á sunnudag klukkan 14:00. Prestar verða Kristín Þórunn Tómasdóttir og Sigríður Rún Tryggvadóttir, Bakkasystur leiða söng og messukaffi í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs í lokin.
Austfjarðaslagur verður í E riðli fjórðu deildar karla þegar BN tekur á móti Spyrni á Eskifjarðarvelli. Einherji tekur á móti Samherjum á Vopnafirði á sama tíma. Á morgun tekur KFA á móti Haukum í annarri deild karla en Höttur/Huginn spilar gegn Þrótti í Reykjavík. Í annarri deild kvenna leikur Einherji gegn KH að Hlíðarenda.