Helgin: Siglingaklúbbur á ferðalagi og síðasta sýningarhelgi Gúlígogg

Siglingaklúbbur Austurlands verður á ferð um Austfirði um helgina til að kynna starfsemi sína. Á Seyðisfirði lýkur sýningunni Gúlígogg. Alcoa Fjarðaál fagnar 15 ára afmæli og barnamenningarhátíðin BRAS fer af stað, ásamt fleiru.

Siglingaklúbburinn er með bækistöðvar sínar á Eskifirði en markmið hans er að hjálpa þeim Austfirðingum sem hafa siglingar að áhugamáli að stunda það með aðgengi að kajökum, bátum og öðru.

Félagar úr klúbbnum byrja ferð sína í Neskaupstað klukkan 16 í dag við aðstöðu Kajakklúbbsins, verða klukkan 10 á morgun laugardag í fjörunni utan við smábátahöfnina á Fáskrúðsfirði og 14:30 við húsnæði björgunarsveitarinnar á Djúpavogi. Á sunnudag byrjar dagskráin klukkan 11 á Egilsstöðum við Lagarfljótsbrúna áður en farið verður á Seyðisfjörð klukkan 14 á svæði sjósundsfólks.

Á sunnudag er síðasti sýningardagur Gúlígogg, sýningar Jóns Sigurpálssonar, Péturs Kristjánssonar og Örlygs Kristfinnssonar í bistrói Skaftfells. Sýningin er þriðji og síðasti þátturinn í þríleik félaganna Ypsilon gogg, sem hófst með heimspekilegum bollaleggingum þremenninganna, sem árum saman hafa farið fyrir safnastarfi í heimabæjum sínum, Ísafirði, Siglufirði og Seyðisfirði. Undanfarin tvö sumur hafa þeir sýnt á fyrrnefndu stöðunum tveimur.

Alcoa Fjarðaál fagnar því á morgun að 15 ár eru liðin frá gangsetningu álversins á Reyðarfirði. Af því tilefni verður skemmtidagskrá við álverið milli 12-15 og hægt að skoða álverið sjálft í fylgd starfsfólks.

Barnamenningarhátíðin BRAS er komin í gang. Á morgun klukkan 14 sýnir sirkushópurinn Hringleikur listir sínar í Selskógi. Gestir mæta á bílastæðið við skógarjaðarinn og verða þaðan leiddir gangandi um svæðið en sýningin dreifir sér um skóginn.

Ferðafélög Fjarðamanna og Fljótsdalshéraðs standa fyrir sameiginlegri ferð á Beitageitarfjall. Mæting er við hús Ferðafélags Fljótsdalshéraðs að Tjarnarási á Egilsstöðum klukkan átta í fyrramálið. Skúli Júlíusson leiðsegir.

Stúdíó Ströndin á Seyðisfirði stendur um þessar mundir fyrir röð súpufunda með ljósmyndurunum. Gestur dagsins verður Hlynur Pálmason, leikstjóri frá Höfn sem er að frumsýna mynd sína, Hreiðrið, í kvöld. Súpan er í boði frá 17:30 í Ströndinni, Seyðisfirði.

Harmonikkufélag Héraðsbúa heldur árlegan ágústdansleik sinn í Valaskjálf annað kvöld. Meðal þeirra sem spila eru Hreinn Halldórsson, Hildur Petra, Gylfi og Jón og Haukur Helgi ásamt hljómsveitum og meðleikurum.

KFA mætir Þrótti Reykjavík í annarri deild karla á morgun í Fjarðabyggðarhöllinni. Höttur/Huginn heimsækir Völsung. Einherji tekur á móti Hamri í annarri deild kvenna en Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir spilar gegn Haukum í Hafnarfirði í Lengjudeildinni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar