Helgin: Syngja um þjáningu Maríu við krossinn

Sönghópurinn Austuróp flytur annan hluta dagskrár sinnar við bænatextann Stabat Mater í Egilsstaðakirkju um helgina. Námskeið, sýningar, tónleikar og úrslitakeppni í íþróttum er meðal þess sem er á dagskránni hjá Austfirðingum um helgina.

Stabat Mater er bænatexti frá 13. öld sem fjallar um þjáningu Maríu sem syrgir son sinn, Jesús Krist, á krossinum. Mörg tónverk hafa verið samin við textann og hefur Austuróp gert hluta þeirra skyn á tvennum tónleikum. Hinir fyrri voru fyrir tveimur vikum.

„Þar fluttum við þekktasta verkið sem samið hefur verið við þennan texta, eftir Pergolesi. Við tefldum því saman við tónverk eftir Hildi Guðnadóttur og heimsfrumfluttum það í útsetningu fyrir kvennakór,“ segir Hlín Pétursdóttir Behrens, sem fer fyrir Austurópi.

„Á seinni tónleikunum á sunnudag færum við okkur nær nútímanum. Þó erum við með tónverk eftir portúgalskt endurreisnartónskáld frá 16. öld við hluta textans og síðan flytjum við verk Arvö Pärt við Stabat Mater frá 1980. Hann er Eistlendingur og eitt mest spilaða samtímatónskáld í heimi.

Að auki fannst okkur þjóðráð að leita fanga hjá tveimur tónskáldum sem búa á Fljótsdalshéraði, þeim Wesley Stephens og Charles Ross sem hafa samið verk sem tengjast föstunni og bænahaldi á henni.“

Einsöngvarar eru Hlín Pétursdóttir Behrens, sópran, Erla Dóra Vogler, messósópran og Úlfar Trausti Þórðarson tenór. Hljóðfæraleikarar eru Mairi Louisa McCabe á fiðlu, Charles Ross á víólu og Suncana Slamnig á selló.

„Eins og vanalega koma hugmyndirnar að verkefnavali okkar út frá því hve margt hæfileikafólk við eigum hér á Austurlandi, bæði söngvara og hljóðfæraleikara. Þessi verk eru sérvalin fyrir flytjendahópinn,“ segir Hlín. Tónleikarnir hefjast í Egilsstaðakirkju á sunnudag klukkan 17:00.

Lög Cohen

Í kvöld leikur Daníel Hjálmtýsson frá Fáskrúðsfirði lög eftir Leonard Cohen á Tehúsinu á Egilsstöðum. Daníel hefur frá árinu 2017 staðið fyrir reglulegum tónleikum með lögum eftir Kanadamanninn og komið fram víða um landið. Daníel, sem er á mála hjá bæði hollenskum og belgískum umboðsskrifstofum, stefnir á útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar síðar á árinu. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00.

Bókverk á Skriðuklaustri

Nýtt starfsár hefst á Skriðuklaustri með opnun bókverkssýningunni Land frá bókverkafélaginu ARKIR klukkan 14:00 á laugardag. ARKIR eru hópur kvenna sem meðal annars vinna með bókverk sem listsköpun. Vverk frá þeim hafa verið sýnd víðsvegar um heim

„Verkin á sýningunni hafa mörg hver verið sýnd víða um heim en að þessu sinni hafa verkin verið valin sérstaklega með sýningarrými Skriðuklausturs í huga.

Heiti sýningarinnar, LAND, hefur víða og fjölþætta skírskotun sem snertir hvert mannsbarn. Ef til vill eru fá orð merkingarþrungnari, nú þegar við blasa umbrotatímar í náttúru og mannheimum. Landið er grundvöllur lífsins, jörðin sem við ræktum og höfum undir fótum, landið er fósturjörð og fjarlæg lönd, undirstaða sjálfsmyndar einstaklinga og þjóða,“ segir í tilkynningu. Sýningin stendur út mánuðinn.

Námskeið

Í félagsheimilinu Végarði verður Droplaug, hið fljótsdælzka handverksfjelag, með námskeið í tálgun úr ferskum við í dag og á morgun. Bjarki Sigurðsson leiðbeinir.

Í Hallormsstaðarskóla verður námskeið í súrdeigsgerð á morgun þar sem bakað verður bæði brauð og pizza. Ýmir Knútur Eiríksson leiðbeinir.

Tvær nýjar sýningar á Seyðisfirði

Á Seyðisfirði opnar ferðasýningin Misplaced Glaze í Herðubreið í dag og stendur í viku. Á sýningunni túlka tveir ljósmyndarar frá Paragvæ flutning sinn úr stórborginni þar til Seyðisfjarðar.

Á Vesturveggnum í bistrói Skaftfells opnar sýning á verkum eftir Garðar Bachmann Þórðarson. Garðar, sem starfar í dag sem kokkur um borð í Gullveri, hefur lengi fengist við ljósmyndum og myndbandsgerð. Hann vinnur nú að bók sem heita um „Brak og brestir – eldað um borð í Gullveri NS12.“ Í henni fjallar Garðar Ljósmyndasýningin á Vesturveggnum býður upp smá innsýn inn í bókverkið.

Undanúrslit í íþróttum

Nóg verður líka að gera í íþróttunum. Skíðafélagið í Stafdal heldur utan um Austurlandsmót í alpagreinum sem haldið verður á morgun og sunnudag.

Höttur tekur á móti Fjölni í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum fyrstu deildar karla í körfuknattleik á Egilsstöðum klukkan 18:00.

Kvennalið Þróttar mætir KA í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í Laugardalshöll klukkan 15:30 á morgun.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.