Hin eiginlega afmælishátíð LungA gengur vel

Hin þekkta listahátíð LungA á Seyðisfirði hófst í vikunni og sem fyrr er fjöldi fólks mætt í bæinn til að taka þátt. Hátíðin nú er með öðru sniði en verið hefur.

LungA hefur verið haldin árlega frá síðustu aldamótum ef frá er talið sumarið 2020 þegar henni var aflýst sökum Covid. Til stóð að sú hátíð yrði sérstaklega vegleg sökum þess að um 20 ára afmæli væri að ræða.

Þóra Flygenring, upplýsingafulltrúi LungA, segir að hátíðin nú sé tæknilega hin eiginlega afmælishátíð vegna þess að þó hún hafi verið haldin síðasta sumar þá var hún með miklu minna sniði en áætlað var sökum fjöldatakmarkana. Að auki hafi stjórnendur endurhugsað hugmyndina að baki hátíðinni sem merkir að nú eru uppákomur mun víðar í bænum á sama tíma og tónlist er gert óvenju hátt undir höfði. Þannig er ekki lengur eitt aðalsvið fyrir viðburði heldur nokkur smærri svo mismunandi tónlist og gjörningar fara fram á sama tíma hér og þar á Seyðisfirði.

Sem verið hefur verða ýmsar listasmiðjur í gangi alla dagana, gjörningar og sýningar hvers kyns á ýmsum stöðum og ein 23 mismunandi bönd og tónlistarfólk leika og syngja fyrir gesti LungA. Dagskrána má sjá hér.

Karókí í sívinsæl leið til að keyra gott stuð í gang. Bara einn af tugum mismunandi viðburða. Mynd LungA

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.