Hin merka saga Hótels Hildibrand í Neskaupstað
„Þegar húsið er opnað fyrst var hér á neðstu hæðinni matvöruverslun og hluti af járnvöruverslun og svo var á annarri hæð herrafataverslun og einnig á þeirri hæð voru skrifstofur Kaupfélagsins og á þriðju hæð var svo svokölluð dömudeild,“ útskýrir Guðröður Hákonarson, eigandi Hildibrand hótels í Neskaupstað.
Það vart nema elsta fólk sem gerir sér grein fyrir að hið vinsæla hótel Hildibrand er rekið í húsnæði sem fyrrum var miðja alheimsins í bænum. Svo mjög voru heimamenn framsæknir á sínum tíma að þetta fjögurra hæða hús sem var, og er mikið til, enn miðpunkturinn í bænum var fyrsta magasínið, að dönskum sið, á Austurlandi öllu. Staður þar sem viðskiptavinir áttu að geta fundið allt sem þá vanhagaði um á einum og sama staðnum.
Frá þessari merku sögu er skýrt í þættinum Að austan sem hóf göngu sína á sjónvarpsstöðinni N4 fyrir helgina en eins og nafnið gefur til kynna er þar eingöngu fjallað um austfirsk málefni frá A til Ö.
Hér að neðan gefur að líta umrætt viðtal við Guðröð auk margs annars forvitnilegs úr austfirskum ranni.