Hjörleifur Guttormsson heiðraður af NAUST

Hjörleifur Guttormsson, líffræðingur og fyrrverandi Alþingismaður, hlaut um síðustu helgi heiðursverðlaun Náttúruverndarsamtaka Austurlands fyrir framlag sitt til náttúruverndar á Íslandi.

Viðurkenningin var afhent á aðalfundi samtakanna sem haldinn var á Hallormsstað, en þar fæddist Hjörleifur árið 1935. Hann lauk síðar prófi í líffræði frá háskólanum í Leipzig í Þýskalandi.

Hjörleifur kom heim að loknu námi og fékk vinnu í Neskaupstað. Hann kenndi þar meðal annars um áratug áður en hann settist á þing árið 1974.

Hjörleifur hefur alla tíð sýnt mikinn áhuga á náttúruvernd, kom meðal annars að undirbúningi Náttúrugripasafns í Neskaupstað og veitti því forstöðu um tíma. Hann kom einnig að stofnun Náttúruverndarsamtaka Austurlands árið 1970 og varð fyrsti formaður þeirra, embætti sem hann gegndi í áratug.

Hjörleifur hefur verið atorkusamur í fræðistörfum og eftir hann liggur fjöldi greina og rita á sviði náttúru- og minjaverndar. Ber þar helst að telja árbækur Ferðafélags Íslands þar sem Hjörleifur hefur einkum skrifað um Austurland.

Hann er enn að og af nýlegum verkum hans má nefna sögureit á Valþjófsstað sem vígður var fyrir rúmri viku og skrif og hugmyndavinna á Úthéraði.

„Hjörleifur er enn að störfum orðin 86 ára gamall og það er nánast með ólíkindum hversu afkastamikill hann er enn þar sem hann er hvorutveggja í miðju kafi við náttúru- og eða minjaverndarverkefni og öll eru þessi verk unninn í þágu samfélagana allt í kringum landið og þá ekki síst á Austurlandi með hagsmuni komandi kynslóða að leiðarljósi,“ sagði Andrés Skúlason, fráfarandi formaður NAUST við afhendinguna á laugardag.

Andrés lét af störfum á fundinum og er Kristín Amalía Atladóttir nýr formaður. Dagskrá fundarins bar meðal annars keim af því að samtökin urðu 50 ára í fyrra og voru flutt fræðsluerindi af því tilefni, sem ekki náðist að gera vegna samkomutakmarkana í fyrra.

Hjörleifur með viðurkenninguna ásamt konu sinni, Kristínu Guttormsson. Mynd: Andrés Skúlason/NAUST


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.