Skip to main content

Hækka grunnframfærslu LÍN um 20%

LífiðThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 09. sep 2009 15:35Uppfært 08. jan 2016 19:20

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær tillögu félags- og tryggingamálaráðherra og menntamálaráðherra um að hækka grunnframfærslu Lánasjóðs íslenskra námsmanna um 20%, samhliða ýmsum aðgerðum sem ætlað er að tryggja sparnað í námslánakerfinu og atvinnuleysistryggingakerfinu sem þessari hækkun svarar.

skjaldarmerki.jpg

Í aðgerðunum nú felst:

 

Grunnframfærsla námslána hækkar í kr. 120.000,- á mánuði.

Tekjuskerðingarhlutfall námslána eykst úr 10% í 35%. Tekið verður upp 750.000 króna frítekjumark sem verður fimmfalt fyrir þá einstaklinga sem eru að hefja nám og hafa verið á vinnumarkaði.

Framfærsla einstaklinga í heimahúsum stendur í stað og verður þannig 50% af grunnframfærslu. Jafnframt er gert ráð fyrir að skólagjaldalán verði endurskoðuð í úthlutunarreglum fyrir skólaárið 2010-2011.

Dregið verður úr möguleikum á að sækja einingabært háskólanám samhliða töku atvinnuleysisbóta.

Atvinnuleysisskrá er nú að fullu samkeyrð við nemendaskrár háskólanna.

Afnuminn verður réttur námsmanna til töku atvinnuleysisbóta í sumarleyfi skóla.

Gert er ráð fyrir því að framfærsla hækki eða standi í stað hjá miklum meirihluta námsmanna eða allt að 80%.

Framangreindar tillögur um breytingar á tekjuskerðingarviðmiðum koma sér best fyrir þann hóp námsmanna sem hefur minnstar tekjur. Einstaklingar í leiguhúsnæði með undir 1.760 þús. í árslaun með námi fá hækkun miðað við núverandi kerfi en þeir sem eru yfir þessum mörkum fá minna. Einstaklingar í leiguhúsnæði með tekjur yfir 3.850 þús. kr. á ári fá ekki lengur námslán eftir breytingarnar. Þær lánsáætlanir sem þegar hafa verið gefnar út af LÍN vegna skólaársins 2009-2010 gilda skv. áður útgefnum úthlutunarreglum.  Hins vegar geta námsmenn afturkallað þær umsóknir og sent inn nýja skv. breyttum reglum.