Hoffellið fann makríl vestur að Kolbeinsey
Makríll fannst allt vestur að Kolbeinsey í leiðangri sem Hoffellið SU, skip Loðnuvinnslunnar, fór fyrir Hafrannsóknarstofnun.
„Mér finnst mjög merkilegt til þess að vita að makríll skuli finnast svona djúpt norður af landi sem raun ber vitni, alveg norður fyrir Kolbeinsey. Við fundum engan makríl vestan við eyna enda er makríllinn bundinn við hlýja sjóinn,“ er haft eftir Bergi Einarssyni, skipstjóra á Hoffellinu í Fiskifréttum í dag.
Loðna kom á móti fram í kaldasjónum djúpt úti fyrir norðvestanverðu landinu. Leiðangur Hoffellsins stóð í fimm daga og leitaði skipið meðfram Norður- og Austurlandi.