Jólafriður á Eskifirði
Hinir árlegu tónleikar Jólafriður voru haldnir í Kirkju- og menningarmiðstöð Austurlands sunnudagskvöldið 18. desember.
Jólalög fyrr og síðar voru spiluð þegar helstu tónlistarmenn austurlands komu saman á tónleikum sunnudaginn 18. desember. Þessir tónleikar ganga undir nafninu Jólafriður og hafa verið haldnir árlega síðastliðin tíu ár. Í ár áttu tónleikarnir tíu ára afmæli og voru þeir einkar glæsilegir af tilefninu. Húsið var fullt út úr dyrum og mikil og góð stemning var í salnum á meðan á tónleikum stóð.