Kajakræðarar róa meðfram Austfjörðum
Kajakræðararnir Rian Manser og Dan Skinstad, sem hófu ferð sína á kajak umhverfis Ísland um miðjan mars, komu til Austfjarða um helgina og róa meðfram austurströndinni næstu daga.
Félagarnir komu til Vopnafjarðar um miðja vikuna og róa nú áfram úti
fyrir Austfjörðum. Þeir hófu för sína frá Húsavík 16. mars og gera ráð
fyrir að vera fjóra mánuði að 500 km leið umhverfis Ísland. Þeir róa að
meðaltali 21 kílómeter á dag í 96 daga en hvíla í nítján.
Ferðin er mikil áskorun fyrir báða. Þótt Riaan sé vanur ræðari hefur
hann ekki áður leitt ferð yfir erfiða leið. Dan er með lítillega skerta
hreyfigetur og tekst á við þær áskoranir sem henni fylgja.
Þeim fylgir vel búið lið tökumanna og ljósmyndara sem vinna að
heimildarmynd um ferðina. Liðið hjálpar tvímenningunum samt ekki. Þeir
þurfa að tjalda sjálfur á hverjum degi, útvega sér mat og takast á við
hverjar þær aðstæður sem upp kunna að koma.
Nánar má fylgjast með ferðum þeirra á heimasíðu Riaan.