Katrín Halldóra kemur heim um helgina
Söngkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir heldur þrenna tónleika á heimaslóðum um helgina. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Tónaflugi. Ýmis námskeið eru í boði þessa fyrstu helgi september.Katrín Halldóra heldur tvenna tónleika í Egilsbúð í Neskaupstað á morgun, klukkan 16 og aftur klukkan 20 en syngur síðan í Tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði á sunnudag klukkan 16.
Katrín Halldóra, sem uppalin er í Neskaupstað, er hvað þekktust fyrir túlkun sína á söngkonunni Ellý Vilhjálms í samnefndri sýningu Borgarleikhússins. Fyrir túlkun sína fékk Katrín Halldóra Grímuverðlaunin árið 2017.
Hún hefur síðan komið fram á bæði sviði og sjónvarpi en hún starfar í dag sem leikkona hjá Þjóðleikhúsinu. Hún syngir samhliða leiklistinni og gaf í fyrra út sína fyrstu sólóplötu með lögum eftir Jón Múla og Jónas Árnason í nýjum útsetningum.
Með henni austur kemur hljómborðsleikarinn Hjörtur Ingvi Jóhannsson, sem hvað þekktastur er úr hljómsveitinni Hjaltalín. Saman taka hann og Katrín Halldóra íslensk og erlend lög sem er í uppáhaldi hjá þeim.
Annar tónlistarmaður á ferð um Austurland þessa helgina er úkraínski listamaðurinn Make Like a Tree. Tónleikar hans eru bland af tónlist og sjónlist í þágu friðar. Hann kemur fram á Tehúsinu á Egilsstöðum annað kvöld og í Beituskúrnum í Neskaupstað á sunnudag.
Jurtalitun og kínverskar æfingar
Helgin er annars merkileg fyrir þær sakir að óvenju mikið er um námskeiðahald. Í dag og á morgun verður haldið námskeið í minjagripagerð á vegum Minjasafns Austurlands, Húss handanna og Fljótsdalshrepps.
Hallormsstaðaskóli stendur á morgun fyrir grunnnámskeiði í jurtalitun í samstarfi við Samband austfirskra kvenna. Leiðbeinandi er Emma Ärmänen og fjallar hún um litfesta, litunarjurtir, tínslu og verkun jurta og efni til að breyta litum. Eftir námskeiðið eiga þátttakendur að geta litað sjálfir og gert tilraunir með jurtir úr sínu nánasta umhverfi.
Á laugardag og sunnudag verður Qigong-námskeið á Hótel Héraði undir stjórn Þorvaldar Inga Jónssonar. Þar kennir hann Qigong, aldagamlar kínverskar heilunaræfingar sem allir geta gert til að vinna með tilfinningar sínar og öðlast meiri lífsorku, gleði og jákvæða lífsafstöðu. Þær byggja á djúpri öndun, mjúkum og styrkjandi hreyfingum í samhljómi við hugleiðslu með áherslu á brosið og jákvæðni.
Á morgun verður grunnnámskeið en farið dýpra á sunnudag. Leiðbeinandinn Þorvaldur Ingi Jónsson hefur stundað Qigong frá árinu 2009, sótt fjölda námskeið hjá meisturum ásamt því að leiða og kenna æfingar.
Á Vopnafirði stendur Hestamennafélagið Glófaxi fyrir tveggja daga reiðnámskeiði fyrir ýmsa aldurshópa.
Lokasprettur knattspyrnuvertíðarinnar
Barnamenningarhátíðin Bras heldur áfram. Íris Lind Sævarsdóttir, myndlistarkona, kemur við í grunnskólanum á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði á morgun og Fáskrúðsfirði á sunnudag með vinnusmiðjur þar sem lögð er áhersla á listsköpun úti í náttúrunni.
Nú líður að lokum Íslandsmótsins í knattspyrnu. Einherji spilar fyrri leik sinn við Árborg í úrslitakeppni fjórðu deildar karla syðra á morgun, seinni leikurinn verður á Vopnafirði á þriðjudag. KFA fer á Grenivík og mætir Magna í fallslag í annarri deild karla á morgun. Á sama tíma mætast liðin sem fóru saman upp í deildina, Höttur/Huginn og Ægir á Vilhjálmsvelli, en þau eru á lygnum sjó um miðja deild. Kvennalið Einherja tekur á morgun móti Álftanesi í neðri hluta annarrar deildar kvenna.