Kenna fólki að takast á við kvíða og angist
„Með því að læra að skoða hugsanagang okkar getum við fengið aukinn skilning á líðan okkar og hegðun og sjáum betur tengslin þarna á milli. Ef við rekumst á óraunsæjar, neikvæðar eða óhjálplegar hugsanir þá getum við þar af leiðandi frekar breytt þeim og æft okkur í að hugsa á röklegri eða hjálplegri hátt,“ segir Sigurlín H. Kjartansdóttir, sálfræðingur hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA.)
Sigurlín mun í samvinnu við Védísi Klöru Þórðardóttur, hjúkrunarfræðings í geðheilbrigðisteymi HSA, halda allnýstárleg námskeið í hugrænni atferlismeðferð (HAM) bæði á Egilsstöðum og á Reyðarfirði á næstunni. Þau námskeið í ofanálag við rafræna atferlismeðferð sem verið hefur í boði um skeið á flestum heilsugæslum landsins.
Hugræn atferlismeðferð leitast við að kenna einstaklingnum að finna hugsanlega lausn á andlegum vandamálum með því að læra að þekkja eigin hugsanir og hversu víðtæk áhrif þær geta haft á andlega líðan. Sigurlín segir að þó slíka námskeið taki í sjálfu sér ekki langan tíma þá lýkur meðferð í raun aldrei.
„Maður klárar aldrei HAM meðferð þótt henni ljúki oft á frekar skömmum tíma, því maður fær í hendurnar verkfæri til að hafa áhrif á og vinna með eigin hugsanir og hugsanagang en það er svo í höndum hvers og eins að halda áfram að æfa sig, vera opinn og vakandi fyrir neikvæðum eða óhjálplegum hugsanaferlum og takast á við þau með uppbyggjandi hætti.“
Fyrsta námskeiðið hefst þann 28. febrúar en hist er vikulega í rúman mánuð.