Kirkjumiðstöðin að Eiðum fagnar 30 ára afmæli

„Þarna ætlum við og vonandi fjöldi gesta sömuleiðis að koma saman, njóta þessa fagra svæðis og halda upp á þessi tímamót,“ segir Þorgeir Arason, sóknarprestur, en hann er einn þeirra sem kemur að mikilli afmælishátíð Kirkjumiðstöðar Austurlands sem fram fer á Eiðum á sunnudaginn kemur.

Þar hefur kirkjan rekið vinsælar sumarbúðir í fallegu umhverfi í rétt 30 ár. Framan af í húsnæði barnaskólans en frá 25. ágúst 1992 í byggingu miðstöðvarinnar við Eiðavatn.

Mikill fjöldi fólks hefur dvalið í þeim sumarbúðum gegnum tíðina en Þorgeir segir að aðsókn síðustu árin hafi verið mjög góð eftir að hafa dalað aðeins áður.

„Það hefur verið uppselt í sumarbúðirnar okkar í sumar og verið góð aðsókn hingað undanfarin misseri. Hingað bjóðum við ýmsum mismunandi hópum og miðstöðin er einnig á stundum leigð út. Þannig er hér er mikið líf öll sumur svo að segja.“

Til stendur að bjóða upp á pylsur og annað góðgæti á sunnudag auk þess sem þar eru til staðar ýmis leiktæki og auðvitað bátar til að fara út á Eiðavatn. Þá mun sr. Sólveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup að Hólum, prédika en afmælishátíðin stendur frá 11 til 14.

Þorgeir segir að kirkjan standi ennfremur fyrir söfnun á þessum tíma en til stendur að safna fyrir bættri aðstöðu starfsfólks búðanna auk þess að endurbæta útisvæði.

„Það stóð alltaf til að stækka og bæta aðstöðu starfsmanna sem þarna starfa en það náðist að klára það verk á sínum tíma en nú vonum við að við getum látið það rætast.“

Kirkjumiðstöðin stendur nálægt bakka Eiðavatns í kostulegu umhverfi og þúsundir einstaklinga notið þar lífsins í sumarbúðum undanfarin 30 ár. Mynd Kirkjan

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.