Koma á fót fataloppu á Eskifirði

„Ég hef gengið með þessa hugmynd í maganum lengi og nú var bara tími til kominn að koma þessu á laggirnar,“ segir Elín Rún Sizemore, rafvirki og brátt sölumaður á Eskifirði.

Elín og eiginmaður hennar undirbúa nú að opna svokallaða fataloppu í bænum en það er fatamarkaður þar sem áhugasamir geta selt föt og annað smálegt í góðu húsnæði og vandræðalaust því Elín mun sjá um að selja vörurnar fyrir fólk.

„Þetta virkar þannig að fólk leigir sér bás eða bása hjá okkur, fá herðatré, merkimiða og annað slíkt hjá okkur og við sjáum svo um að fylla á eftir þörfum auk þess sem við auglýsum vörurnar reglulega á samfélagsmiðlum. Í lok tímabilsins gerum við upp þannig að við tökum 15% hagnaðar en söluaðilinn fær 85% til sín.“

Slíkir fatamarkaðir hafa verið starfræktir suðvestanlands og á Akureyri um hríð og gengið vel að sögn Elínar sem vel hefur fylgst með.

„Annars staðar eins og á Akureyri eru slíkir markaðir að stækka og stækka og engin spurning að þetta er komið til að vera. Ekki aðeins til að minnka þau tonn af fatnaði sem fara á haugana heldur og líka ef fólk er með lítið notuð dýr föt að fá eitthvað aðeins fyrir líka.“

Hólagull mun verslunin heita og er staðsett á Hólsvegi. Elín segir að frá og með 1. október verði opið þar daglega í einhverjar klukkustundir og lengur um helgar. Þá íhugar hún líka að bjóða póstsendingar ef fólk langt burtu kemst ekki á staðinn en hefur áhuga á tilteknum flíkum.

Nytjamarkaðir hvers kyns ryðja sér mjög til rúms víða og njóta vinsælda. Eskfirðingar geta brátt notið þess að eiga sína eigin fataloppu. Mynd Fjarðabyggð

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar